Krakkar fæddir 2010-2013:

  • námskeið 1 : 10. – 19. júní (7 dagar)
  • námskeið 2 : 22. – 26. júní
  • námskeið 3: 29. – 3. júlí
  • námskeið 4: 6. – 10. júlí
  • námskeið 5: 13 – 17. júlí
  • námskeið 6: 20. – 24. júlí
  • námskeið 7: 27 – 7.ágúst (ekki námskeið frá 30.júlí-4.ágúst)
  • námskeið 8: 10. – 14. ágúst
  • námskeið 9: 17. – 21. ágúst

Knattspyrnuskólinn byrjar stundvíslega kl. 09:00 og stendur til 12:00  fyrir 6-12 ára (7.-6.flokkur). Krakkarnir þurfa að hafa með sér hollt nesti og vera klædd eftir veðri. Boðið upp á gæslu í íþróttahúsinu frá 08:00-09:00 og frá 12:00-13:00. Gæslan fer fram í íþróttasalnum í Kaplakrika og/eða Dvergnum og er ætluð þeim iðkendum sem sækja námskeið hjá frjálsum eða handbolta eftir hádegi. . Gæslan er innifalin í verðinu. Við æfum í Risanum, Dvergnum og í Skessunni

Æfingar hjá 6. og 7.flokk eru frá 09:00-10:15 þrjá daga vikunnar. Einnig er boðið upp á tvær æfingar milli kl 16:30 og 17:30 tvo daga í viku fyrir þá sem ekki komast á morgnana. Þeir sem fara svo á námskeið hjá öðrum deildum innan FH eftir hádegi geta fengið hádegismat í kaffihúsinu í Kaplakrika. Verð fyrir mat í hádeginu er 2000 krónur vikan. ATH. Ekki er hægt að greiða fyrir staka máltíð. Öll skráning á mat fer í gegnum Sportabler.

Knattspyrnuskólanum er áhersla lögð á að þátttakendur fái verkefni við sitt hæfi. Farið verður í grunnþætti knattspyrnunnar og leikgleði höfð í fyrirrúmi. Dagskráin er brotin upp vikulega, haldið verður HM-mót hvern föstudag og auk þess að heimsóknir frá þekktu knattspyrnufólki verða fastur liður.

Verð fyrir hvert námskeið er 6000 kr (hægt er að borga stakan dag fyrir 2000 kr).. Skráning á námskeiðin fer fram í gegnum Sportabler shop og er tengill á síðuna hér að neðan. Ef iðkandi kemst ekki alla dagana er einnig hægt að borga fyrir staka daga. Hægt er að skrá á staðnum. Fyrsta námskeiðið er sjö daga námskeið en við höfum ákveðið að hafa sama verð og á öll hin námskeiðin þar sem iðkendur misstu mikið úr vegna COVID19.

https://sportabler.com/shop/fh?category=F%C3%B3tbolti


BOLTASKÓLINN

Krakkar fæddir 2013-2015:

  • námskeið: 8. – 17. júlí
  • námskeið: 20. – 24. júlí
  • námskeið: 27 – 5. ágúst
  • Boltaskólinn stendur yfir frá 9.00-12.00. Krakkarnir þurfa að hafa með sér hollt nesti og vera klædd eftir veðri. Boðið er upp á gæslu frá 8.00-9.00.
  • Farið verður í ýmsa hreyfi- og boltaleiki og boltar af ýmsum stærðum og gerðum kynntir fyrir krökkunum. Námskeiðið fer fram í íþróttasalnum okkar en einnig fá börnin að kynnast útisvæðum í Kaplakrika og knatthúsunum.
  • Verð fyrir hvert námskeið er 6000 kr (hægt er að borga stakan dag fyrir 2000 kr). Námskeiðin eru mislöng en í stað þess að hækka verðið á lengri námskeiðin höfum við ákveðið að halda sama verði og í fyrra þar sem iðkendur hafa misst mikið úr vegna COVID19. Skráning á námskeiðin fer fram í gegnum Sportabler shop, sjá tengil hér að neðan . Ef iðkandi kemst ekki alla dagana er hægt að borga fyrir staka daga.

https://sportabler.com/shop/fh?category=F%C3%B3tbolti

Stjórnendur og leiðbeinendur:

Skólastjórar í ár eru Melkorka Katrín Flygenring Pétursdóttir, þjálfari 6.flokk kvenna og Brynjar Sigþórsson , þjálfari 5.flokks karla. Þeim til halds og trausts verða aðal- og aðstoðarþjálfarar yngri flokka FH og leikmenn í meistaraflokkum félagsins og 2. og 3. fl. karla og kvenna. Allar frekari upplýsingar á knattspyrnuskoli@fh.is.

Knattspyrnuskólinn á Facebook

Við hvetjum alla til að fylgjast með Knattspyrnuskóla FH á Facebook þar sem birtast m.a. myndir og myndbönd frá námskeiðunum. https://www.facebook.com/knattspyrnuskolifh/

 

Öll skráning fer fram í gegnum Sportabler shop.

https://sportabler.com/shop/fh?category=F%C3%B3tbolti