Spekingar spá í spilin fyrir FH – Haukar

Spekingar spá í spilin fyrir FH – Haukar

FH.is rölti um Hafnarfjörðinn nú síðdegis í dag og tók púlsinn á fólki varðandi leik FH og Hauka í N1-deild karla á morgun, laugardag. Því miður var ekki hægt að vera með vídeó, en það verður gert síðar í vetur!

,,Þetta er rosalega erfið spurning hvor vinnur leikinn og hverjum ég eigi að halda með. Ég hérna áður fyrr var ég gallharður FH-ingur, en ég gifti mig inn í Haukafjölskyldu og hef svo verið Haukamegin seinni ár. Þetta verður erfiður leikur fyrir taugarnar. Ég spái því að FH hafi leikinn, en þeir hafa verið á blússandi siglingu.”
– Siggi Sigurjóns, leikari.

,,Þetta verður án nokkurs vafa frábær og fjörugur leikur enda stemmningin jafnan ólýsanleg þegar þessi lið takast á, en ég spái því að Haukar sigri 24-20. Hafnarfjarðarliðin verða þau tvö sterkustu í vetur og því er algjör handboltaveisla framundan hér í Hafnarfirði á næstu mánuðum.”
– Rósa Guðbjartsdóttir, pólitíkus.

,,Ég ætla að sjálfsögðu að styðja mína menn, en ég ætla hinsvegar ekki að mæta. Ég hef aldrei farið þangað inn og mun líklega aldrei gera. Það gæti hinsvegar verið að ég fari að leik loknum og horfi framan í þá sem koma út ef FH vinnur. Að sjálfsögðu veit ég að FH vinnur!”
– Ingar Viktorsson, kennari og FH-ingur með meiru.

,,Ég spái 30-26 fyrir FH. Logi, Óli Guðmunds og Pálmar í markinu munu spila lykilhlutverk og klár styrkleiki FH-liðsins, er FH-hjartað. Einnig hef mér finnst Logi breyta þessu liði, en mér við bara vera með fínt lið. Leikmenn mega búast við miklum stuðningi…verður ekki Gussi Vass á pöllunum?”
– Orri Þórðarson, knattspyrnuþjálfari og spekingur mikill.

Aðrar fréttir