Stelpurnar fá ÍBV í heimsókn
Kvennaboltinn er hafinn á ný og mæta Eyjastúlkur í Krikann í kvöld þriðjudag og hefst leikurinn klukkan 19.00.
FH er fyrir leikinn í sjötta sæti með sex stig eftir sjö leiki og getur með sigri komist upp í það fimmta.
ÍBV er í áttunda sæti og getur með sigri komist upp fyrir bæði Hauka sem sitja í sjöunda sæti og FH.
FH liðið kemur nokkuð breytt úr jólafríinu þar sem Ragnhildur Guðmundsdóttir fyrirliði liðsins gekk til liðs við Val og Gunnur Sveinsdóttir fór í Stjörnuna.
Að auki lét Guðmundur Karlsson af störfum og við tók Jón Gunnlaugur Viggósson.
Það er því um að gera að koma og styðja við liðið í Krikanum í þessum mikilvæga leik.
Áfram FH.