Stelpurnar sigruðu í Mosó

Stelpurnar sigruðu í Mosó

FH-stelpurnar unnu stóran sigur á Aftureldingu í Mósó í Faxanum í kvöld.  Staðan í leikhlé var 0-3 en í síðari hálfleik bætti FH við 5 mörkum.  Eins og tölurnar gefa til kynna voru yfirburðir FH nokkrir en veðurfar var ekki eins og best verður á kosið að þessu sinni.

Hanna Gúst. og Sandra fóru mikinn í liði FH og skoruðu 3 mörk hvor, Maríana 1 og Margrét 1.

Framundan er erfiður leikur gegn sterku liði ÍBV, laugardaginn 27. næstkomandi í Kórnum kl. 16:30. 

Leikurinn verður vafalaust erfiður og spennandi en skemmst er að minnast þess að liðin háðu blóðuga baráttu um sæti úrvalsdeild síðast liðið sumar.  Þar hafði FH betur á dramatískum lokamínútum í Eyjum.  Í hita leiksins lét einn heimildamaður þessi fleygu ummæli falla:

 “þær fagna núna eins og vistmenn á kleppi sem hafa losnað úr spennitreyju”

Aðrar fréttir