Stórleikur gegn KR á mánudag

Stórleikur gegn KR á mánudag

Mótherji: KR
Hvar: Kaplakrikavöllur 
Hvenær: Mánudaginn 8.ágúst
Klukkan: 19:15 

Það er komið að því. Stórleikur í Kaplakrika mánudaginn 8. ágúst þegar KR kemur í heimsókn.

Leikurinn hefst klukkan 19:15. Fyrir leik verður dúndur dagskrá frá kl 18:00 á nýja pallinum okkar
hér í Kaplakrika. Þar verða grillaðir hamborgarar, Reykjavík Chips gefur 100 fyrstu sem koma á
völlinn skammt af frönskum. Friðrik Dór og Pollapönk taka lagið.

Bjarki Ben og Krissi verða með knattþrautir fyrir krakkana í Risanum frá kl 18:00. 

Kæru FH-ingar mætum tímanlega á völlinn að sjálfsögðu í hvítu og styðja liðið til sigurs í þessum
mikilvæga leik.

ÁFRAM FH!

 

20160720-DSC_5342

BAKHJARLAR: 
Við munum halda áfram með það fyrirkomulag sem var í Sjónarhól í fyrra. Það er að segja,
salurinn opnar fyrir Bakhjarla klukkutíma fyrir leik þar sem matur verður í boði ásamt því að
einhver úr þjálfarateyminu og jafnvel gestir mæta á svæðið og fara yfir leikinn sem framundan er.
Með þessu vonumst við til þess að fleiri Bakhjarlar mæti tímanlega á völlinn og drekki í sig
stemninguna. Í hálfleik verður svo boðið upp á kaffi ásamt veitingasölu.

 

f8e0bb8373e7934e
FH – Radio: 
Okkar menn í FH – Radio verða að sjálfsögðu á vellinum á mánudag. Slóð á útsendinguna er á
facebook síðu FHingar.net.

11014939_921601731196372_4605329185026370183_n

Pyngjan:

Að lokum viljum við benda FH-ingum á að nú geta allir sloppið við það að standa í miðasöluröð á
leikdag með því að nota Pyngjuna, sem er ný greiðsluleið fyrir Pepsi-deildina.
Pyngjan er app sem hægt er að nota til að kaupa miða á heimaleiki nokkurra félaga í Pepsi-deild
karla og er FH þar á meðal. Hér er hægt að kynna sér þetta betur: http://www.dhs.is/

Aðrar fréttir