Stórleikur í bikarnum annað kvöld

Stórleikur í bikarnum annað kvöld

FH mætir KR í hörkuleik í 16-liða úrslitum Borgunarbikars kvenna. Leikið verður í Frostaskjóli. 

Okkar stúlkur hafa byrjað mótið ágætlega í Pepsi-deild kvenna og eru með sex stig eftir fjóra leiki. 

KR-stúlkur eru hins vegar í fyrstu deild, en þær tóku þátt í 32-liða úrslitunum einnig. Þar sigruðu þær Fram í framlengdum leik. FH fer hins vegar beint í 16-liða úrslitin.

Leikurinn hefst klukkan 19:15 á KR-velli og hvetjum við alla FH-inga að fjölmenna og styðja stúlkurnar áfram í bikarnum. 

ÁFRAM FH!

Aðrar fréttir