Stórmót Gogga GAlvaska

Stórmót Gogga GAlvaska

Um næstu helgi fer fram stórt mót fyrir yngri hópa. Mótið sem fer fram í Mosfellsbæ ber nafnið Stórmot Gogga og er stærsta mót sem völ er á fyrir börn 14 ára og yngri. Mótið hefur undanfarin ár verið einkar glæsilegt og hefur getið sér gott orð fyrir aðvera prýðis skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Boðið er upp á alls kyns afþreyingu alla helgina, m.a. kemur danskur sirkus og skemmtir.

Núna ættu vonandi allir foreldrar barnanna sem hafa verið á námskeiðunum að hafa fengið til sín upplýsingar um mótið og viljum viðhvetja alla til að skrá börn sín. Þeir sem vilja fá frekari upplýsingar er bent á að hafa samband við Ævar í síma 868-9346 eða í gegnum e-mailaevarou@visir.is.

Ekki er tekið við skráningum eftir kl 19 þann 24. júní

Kveðja, þjálfarar yngri flokka,

Ævar og Daði

Aðrar fréttir