Stórsigur gegn Gróttu og sjöunda sætið staðreynd

Stórsigur gegn Gróttu og sjöunda sætið staðreynd

Stelpurnar gerðu góða ferð á Seltjarnanesið og unnu sigur, 26-17 í næst síðustu umferð N1 deildarinnar.

FH er í sjöunda sæti með tólf stig eftir sautján leiki og er fimm stigum á eftir ÍBV sem situr í því sjötta. Haukar eru í því áttunda með níu stig og geta ekki náð stelpunum okkar að stigum en liðin mætast í lokaumferðinni.

Sigurinn gegn Gróttu var sannfærandi þrátt fyrir að jafnræði hafi verið með liðinum í fyrri hálfleik. Að honum loknum var staðan 8-10. FH tók öll völd á vellinum í þeim síðari og hafði eins og fyrr segir sannfærandi sigur úr býtum.

Kristina varði frábærlega í marki FH og sem dæmi um það þá nýttu heimamenn aðeins eitt af níu vítaskotum sínum. Birna Íris fór á kostum á hinum vallarhelmingnum og skoraði níu mörk. Steinunn kom næst með fimm og Ingibjörg fjögur. Aníta skoraði tvö mörk og þær Berglind, Sigrún og Arndís eitt mark hver.

 

Aðrar fréttir