Sveinbjörg Norðurlandameistari í sjöþraut

Sveinbjörg Norðurlandameistari í sjöþraut

Sveinbjörg Zophoníasdóttir var nokkuð öruggur sigurvegari í sjöþraut í flokki 20-22 ára á Norðurlandameistaramóti unglinga í fjölþrautum sem fram fór um helgina í Kópavogi. Hún vann þrjár greinar af sjö og varð önnur í öðrum þremur og bætti árangur sinn í sex af sjö greinum keppninnar. Staða hennar var sú að þó hún hefði sleppt 800m, sem er síðasta greinin, hefði hún aldrei orðið neðar en í 2.sæti.

Hún hóf keppni með því að koma í mark á 14,46sek í 100m grindahlaupi, sem er hennar besti árangur. Sofia Johnsson frá Svíþjóð, sem varð í 3.sæti í heildarkeppninni, kom fyrst í mark á 14,43sek. Sveinbjörg fór hæst allra í hástökki eða 1,74m sem er reyndar 5cm frá hennar besta í þraut. Kúlunni varpaði hún lengst allra eða 13,85m, sem einnig er bæting hjá henni og bæting um 1,5m í þraut. Fyrrnefnd Sofia átti besta tímann í 200m hlaupi en Sveinbjörg bætti sinn árangur í þraut og kom í mark á 25,74sek, aðeins 6/100 á eftir Sofiu. Eftir fyrri dag var Sveinbjörg með 3421 stig og 394 stiga forskot á Sofiu sem var í öðru sæti eftir fyrri dag og stefndi í sýnilega bætingu hjá henni.

Síðari dagurinn hófst á langstökki þar sem Sveinbjörg stökk 5,99m og var bæði bæting í þraut og besti árangur dagsins. Meðvindur var 2,2m/sek sem er yfir löggildingu árangurs en er löglegt í sjöþraut. Forysta hennar var þarna orðin 537 stig. Í spjótkastinu skildi á milli þar sem Sveinbjörg þeytti því 38,55m, sem er persónulegt met hjá henni, en Sofia aðeins rúma 20m. Frida Thorsas frá Noregi nýtti tækifærið og skaust í annað sætið í heildarstigakeppninni með kasti upp á 35,68m. Forskot Sveinbjargar var hér komið í 673 stig á Fridu og 884 stig á Sofiu og því aðeins formsatriði að ljúka þrautinni. Sveinbjörg gaf ekkert eftir og bætti árangur sinn í 800m hlaupinu í þraut og kom í mark á 2mín, 20,50sek sem er hennar besti tími í greininni og lauk keppni með 5723 stig sem er bæting um 244 stig. Þetta er næst besti árangur Íslendings í þessari grein, 155 stigum frá Íslandsmeti Helgu Margrétar Þorsteinsdóttur sem hún setti í Kladno í Tékklandi árið 2009.

Öll úrslit af mótinu má sjá hér.

Aðrar fréttir