Tap fyrir Fram

Tap fyrir Fram

      

23 – 28

Stelpurnar biðu lægri hlut fyrir Fram í dag á heimavelli 23-28. Óhætt
er að segja að þetta hafi ekki verið dagur FH stelpnanna.

Ætla mætti að stúlkurnar hefðu ekki mætt til leiks fyrstu 20 mínúturnar og sem dæmi komust Fram stúlkur í 1-7 forystu og náðu þær mest 8 marka forystu í leiknum.

Leikur FH einkenndist af miklum óstöðugleika. Mest náðu stelpurnar að brúa bilið niður í 2 mörk 21-23 en vegna ráðleysislegs sóknarleiks og misnotkun fjölda dauðafæra refsuðu Framstúlkur okkar stelpum alltaf  þegar einhver möguleiki var á því að leikurinn yrði spennandi.  Tap staðreynd 23-28 og verður að segjast að stelpurnar þurfi að líta í eigin barm því geta þeirra er mun betri en þær sýndu í dag.

Næsta verkefni er leikur gegn Stjörnunni í Kaplakrika eftir nákvæmlega viku og hefst hann kl 16.

Hægt er að kjósa mann leiksins hjá Muggurum hér

Áfram FH!

Aðrar fréttir