Tap gegn Blikum

Tap gegn Blikum

Á meðan Ísland og Frakkland léku í undanúrslitum Evrópukeppninnar, léku Breiðablik og FH í Fífunni. 

Fyrir leikinn höfðu stelpurnar unnið; Hauka og Grindavík sannfærandi en að þessu sinni mættu þær sterkara liði.  Breiðablik leiddi lengstum og hafði 1-0 forystu í hálfleik.  Í Síðari hálfleik vann FH sig betur inn í leikinn en niðurstaðan var að Blikar bættu við tveim mörkum.  

Líkt og áður fengu allir leikmenn FH að spreyta sig og sem slíkur var leikurinn góður.  Næsti leikur liðsins er væntanlega um 2. helgi.

Aðrar fréttir