Tap gegn Grindavík
FH stelpurnar máttu sætta sig við tap í 5. umferð Peps-deildarinnar í gærkvöld. Þá mættu þær liði Grindavíkur í Grindavík en leiknum lauk með 2-0 sigri heimamanna. Mörkin komu á ´25 og ´63 mínútu.
Byrjunarlið 5-4-1
Birna Berg
Sigga
Elsa(Halla)-Bella-Sara-Ástrós
Dagmar-Lilliana-Silja-Margrét (Sigrún Ella)
Sandra(Aldís)
Grindavík var sterkari aðilinn í leiknum sem annars þótti nokkuð bragðdaufur. Þær gáfu lítil færi á sér og refsuðu grimmilega. Sem fyrr var FH í vandræðum með sóknarleikinn og náði ekki að skapa sér teljandi færi. Í síðari háfleik breytti liðið um leikskipulag og fór í 4-4-2. Við það kom meiri broddur í sóknir liðisns en dugði ekki til.
Næsti leikur FH er á heimavelli gegn Þór, sunnudaginn 6. júní kl. 16:00