Tap gegn Haukum í Portúgal
Stelpurnar í meistaraflokki léku æfingaleik gegn Haukum í Portúgal á Laugardaginn. Haukar fóru með 1-0 sigur af hólmi í jöfnum leik.
Haft er eftir Jóni Þór, þjálfara liðsins, að liðin hafi sýnt ágætis leik á köflum og sigurinn hefði getað lent báðum megin.
Liðið heldur heim á leið á morgun en stelpurnar koma með sömu vél strákarnir í meistaraflokki karla flýgur út. Þar munu Heimir, Jörundur og Eiríkur leggja lokahönd á undirbúning liðsins fyrir komandi Íslandsmót