Tap gegn Val

Tap gegn Val

Möguleikar FH-inga á að komast í úrslitakeppnina minnkuðu umtalsvert í kvöld þegar liðið tapaði fyrir Val, 25-20. Þýðir þetta tap að FH-ingar verða að vinna sigur á HK í Digranesi á fimmtudaginn næsta ætli þeir sér að sleppa við snemmbúið sumarfrí. Þar að auki þurfa þeir að treysta á hagstæð úrslit í öðrum leikjum.


Pálmar að fagna vörslu gegn sínum gömlu félögum.

Fyrri hálfleikur
FH-ingar virkuðu einbeittir í byrjun leiks, vel studdir af háværum stuðningsmönnum sínum. Vörnin var sæmileg, þó ekki eins góð og oft áður. Sóknarleikur liðsins var aftur á móti mjög slakur og það hafði sín áhrif, Valsmenn nýttu megnið af sínum færum og náðu því fljótt öruggri forystu. Staðan eftir 12 mínútur var 5-1, Val í vil, og endaði hálfleikurinn að lokum 14-7.

Seinni hálfleikur
Staðan jafnaðist ekki mikið í seinni hálfleik. Munurinn á liðunum var einfaldlega of mikill fyrir FH-inga að ná upp, þrátt fyrir að þeim hafi tekist það gegn Fram fyrir nokkrum dögum síðan. Varnarleikur Valsmanna var sterkur og að sama skapi var sóknarleikur FH-inga ekki nægilega góður. Baráttan var til staðar en fátt féll með FH-ingum, leikurinn endaði 25-20 fyrir Val.

Úrslit leiksins þýða það einfaldlega að FH-ingar verða að vinna gegn HK á fimmtudaginn ætli þeir sér að eiga einhvern möguleika á sæti í úrslitakeppninni. Þar að auki þurfa Haukar að vinna Akureyri. Það er því ljóst að róður FH-inga verður harður á fimmtudaginn. En leiki liðið eins og það getur best þá er ekkert því til fyrirstöðu að þeir nái sigrinum og þar með sæti í úrslitakeppninni.


Í baráttunni – Má þetta?

FH-ingar unnu þó einn sigur í kvöld, og það var uppi í stúku. Stemningin meðal FH-inga var mögnuð frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu og skal hrósa þeim fyrir það, enda þökkuðu leikmenn liðsins fyrir sig í lok leiks. Skemmtilegt að sjá muninn á stuðningi við stórliðin tvö sem að áttust við inni á vellinum, og greinilegt að FH-ingar eru nokkuð langt á undan Valsmönnum (og reyndar flestöllum liðum í deildinni) á því sviði.


FH-ingar voru með mikla yfirburði í stúkunni – á því leikur enginn vafi.

Næsti leikur FH-liðsins er eins og áður sagði gegn HK í Digranesi á fimmtudaginn næsta. Leikurinn hefst kl. 19:30. Við viljum hvetja alla, og þá meina ég ALLA til að mæta á leikinn að styðja okkar menn. FH þarfnast ykkar meira en nokkru sinni fyrr! Áfram FH!

Fleiri myndir frá Jóa Long


Pálmar Pétursson – Stund milli stríða

Ruðningur? Spyr sá sem ekki veit.

Össi reynir að sleppa í gegn

Óli Gumm snéri aftur í lið FH eftir bann.

Óli kominn í gegn.
<img title=

Aðrar fréttir

Secret Link