Tap í fyrsta leik

Tap í fyrsta leik

                                                            Sigrún Ella í leik í Krikanum í fyrra.

Það voru ágætar aðstæður og góð umgjörð í kringum leik KR og FH í Frostaskjólinu í gærdag.

FH hóf leik með leikuppstillinguna 4-3-3- (í rauninni 4-5-1 þar sem liðið lág aftarlega á vellinum):
Birna Berg
Bella, Sassa, Sigga, Dínó
Margrét, Ana Rita, Lilliana, Elsa, Sigrún Ella
Aldís

Leikurinn var heldur bragðdaufur í fyrri hálfleik og jafnræði með liðunum.  Aldís Kara var skeinuhætt í sókn FH og skapaði usla í vörn KR.  KR skoraði mark sem var réttilega dæmt af vegna rangstöðu.  Staðan í hálfleik 0-0 og leikurinn opinn.

Síðari hálfleikur hófst með látum og KR skoraði tvö mörk með stuttu millibili.  Þar voru að verki þær Kristín Sverrisdóttir með skalla og Katrín Ásbjörnsdóttir með hnitmiðuðu skoti.  Mörkin komu eftir fyrirgjöf hægra megin við mark FH. Eftir það fengu bæði lið tækifæri en hvorugu tókst að skora. Helst var það Sigrún Ella sem náði að ógna vörn KR með góðum rispum upp hægri kantinn.  Lokatölur 2-0.

  FH-stelpurnar voru satt best að segja ekki mjög líklegar til að skora.  Til þess hefði þurft meiri sóknarþunga. Sóknarmenn voru ekki nógu vel studdir, bakverðir komu ekki nógu hátt á völlinn, miðjan sat eftir og oft slitnaði á milli miðju og sóknar. Þá verða fremstu menn í lið FH að vera grimmari við mark andstæðinganna. Vörn FH  var mistæk í leiknum, lág full aftarlega á vellinum og sóknarmenn KR fengu of mikið pláss og of mikin tíma með boltann.  Það er ljóst að liðið saknar Silju Þórðardóttur sárlega en von er á því að hún komi inn í liðið í 3-4 umferð.

Niðurstaða: Sigur KR var sanngjarn sé miðað við það að þær skoruðu tvö mörk og FH ekkert. FH átti möguleika í þessum leik en greip ekki tækifærið. Aldís Kara og Sigrún Ella áttu ágætis leik fyrir FH en annars var liðið “á pari”. Við þurfum bara meira en parið.

Nú er fyrsti leikur að baki og stelpurnar búnar að losa sig við “skjálftann”.  Framundan er stórt verkefni en þá mætir liðið Íslandsmeisturum síðastliðina fjögura ára, Val.  Leikurinn fer fram í Krikanum á þriðjudaginn kl. 19:15.

Aðrar fréttir