Þakkir frá stelpunum

Þakkir frá stelpunum

Kæru FHingar
Mig langar að koma á framfæri þakklæti frá okkur í meistaraflokki kvenna til allra þeirra sem að studdu við bakið á okkur í kringum bikarúrslitaleikinn sl. helgi. Stjórn og Muggarar sem að gerðu umgjörðina í kringum leikinn eins og best var á kosið sýndu það að FH er félag sem ætlar sér stóra hluti í næstu árum. Frábært var að sjá allt fólkið sem mættu til að styðja okkur og gaman var að sjá heildarsvipinn á stúkunni öll hvítklædd. Við vonum að þrátt fyrir að úrslitin hafi ekki verið okkur hagstæð höfum við sýnt það að FH er lið sem að á heima í fremstu röð. Það er fullur hugur í okkur stelpunum að sú verði raunin og við vonum að við höfum veitt yngri iðkendum félagsins innsýn í það sem koma skal.

Í vetur hefur verið stigið stórt skref í handboltanum í félaginu og höfum við enga trú á öðru en að öll þessi vinna eigi eftir að skila sér fyrr en varir.

Sérstakar þakkir auk stjórnar, Muggara og annarra FHinga fá Laugar Spa, Laugarásbíó, Cafe Aroma, Oliver, EAS og Ölgerðin fyrir þeirra innlegg í undirbúning okkar fyrir leikinn.

Áfram FH

Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir

Aðrar fréttir