Þjálfarastyrkir ÍSÍ

Þjálfarastyrkir ÍSÍ

Þjálfarastyrkir – haust 2004
Verkefnasjóður Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands auglýsir hér með til umsóknar styrki fyrir íþróttaþjálfara til að sækja námskeið eða kynna sér þjálfun erlendis. Veittir verða 8 styrkir, hver að upphæð kr. 50.000.-
Við úthlutun verður leitast við að styrkja sem flestar íþróttagreinar. Þjálfarar hvers kyns hópa (afreksmanna, barna og unglinga o.s.frv.) koma jafnt til greina við úthlutun. Konur eru sérstaklega hvattar til að sækja um styrkina.
Umsóknum með lýsingu á náms- og starfsferli, auk greinargóðrar lýsingar á fyrirhugaðri ráðstöfun styrksins og ávinningi íþróttahreyfingarinnar af henni, skal skilað til skrifstofu ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, í síðasta lagi mánudaginn 1. nóvember nk. Umsóknareyðublöð (pdf.skjal) er hægt að nálgast á heimasíðu ÍSÍ og á skrifstofu ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni Laugardal.

Aðrar fréttir