Þórey Edda fær styrk frá ÍSÍ

Þórey Edda fær styrk frá ÍSÍ

Rúnar og Þórey Edda fá styrk.
Á fundi framkvæmdastjórnar ÍSÍ þ. 8.10. sl. var samþykkt tillaga stjórnar Afrekssjóðs ÍSÍ þess efnis að Rúnari Alexanderssyni og Þóreyju Eddu Elísdóttur verði veittur A-styrkur, 160.000 kr. á mánuði, fyrir mánuðina október, nóvember og desember 2004. Styrkurinn er veittur á grundvelli glæsilegs árangurs þeirra á Ólympíuleikunum í Aþenu.
Stjórn Afrekssjóðs skoðar nú grundvöll styrkveitinga 2005 og mun verða greint frá áherslum þar að lútandi í nóvember.

Aðrar fréttir

Secret Link