Þórsarar í heimsókn á sunnudag – Hamborgarar á grillinu

Þórsarar í heimsókn á sunnudag – Hamborgarar á grillinu

Baráttuglaðir Þórsarar mæta í Krikann á sunnudaginn, en þá fer áttunda umferðin í Pepsi-deild karla fram. Leikurinn hefst klukkan 17:00. 

Þórsararar eru í ellefta sæti með fjögur stig á meðan okkar menn eru á toppnum með tveggja stiga forystu fyrir umferðina, eða með sautján stig.

Nú þurfa FH-ingar að fjölmenna á völlinn. Við ætlum að halda toppsætinu og gaman var að sjá hversu margir FH-ingar lögðu leið sína á Fjölnisvöll í vikunni.

Flykkjumst á völlinn og styðjum okkar menn áfram í baráttunni. Leikurinn hefst stundvíslega klukkan 17:00, en grillaðir verða hamborgarar og hægt verður að fá sér í svanginn. 

ÁFRAM FH!

Aðrar fréttir