Ung.fl karla bikarmeistari!

Ung.fl karla bikarmeistari!

Á fystu mínótum leiksins í gær virtist vera sem að FH ætlaði að kafsigla Stjörnumenn. Strákarnir komust meðal annars í 5 – 0 og héltu þeirri forrystu lengstu um í fyrri hálfleik. Stjörnumenn náðu þó að að minnka muninn í 2 mörk í hálfleik og það var farið að fara um margan FH-inginn. Stjörnumenn héldu svo uppteknum hætti í seinnihálfleik og komust meðal annars 2 mörkum yfir þegar um 12 mín voru eftir. Þá settu FH strákarnir í gírinn og náðu að innbyrða öruggan sigur að lokum 33 – 27.

Tveir leikmenn báru af hjá FH í gær. Aron Pálmarsson átti ótrúlegan leik. Hann skorði 14 mörk og var hreinlega óstöðvandi. Ólafur Guðmundsson átti einnig mjög góðan leik og skoraði 8 mörk.

Að venju var frábær mæting í höllina á bikarleiki hjá FH. Frábær stemmning var á köflum og stuðningur áhorfenda mjög mikilvægur.

Þess má geta að þetta er fjórða árið í röð sem að leikmenn úr þessum árgangi verða bikarmeistarar sem verður að teljast einstakur árangur.

Strákunum er óskað innilega til hamingju með sigurinn og óskað velgengni í baráttunni um Íslandsmeistaratitillinn.

Aðrar fréttir