Ungmennalið FH með enn einn sigur

Ungmennalið FH með enn einn sigur

Ungmennalið FH heldur áfram að gera það gott í 1. deild karla í handbolta. FH strákarnir sóttu
Fjölnismenn heim og uppskáru þriggja marka sigur, 29:26. Þar með hefur
FH unnið alla fjóra leiki sína í deildinni.

Halldór
Guðjónsson var í miklum ham í liði FH og skoraði 14 mörk, Þorkell
Magnússon skoraði 4 og þeir Bjarki Jónsson og Bogi Eggertsson gerðu 3
mörk hvor.

Tekið af mbl.is

Aðrar fréttir