Upphitun: FH – Valur, 11. september 2016

Upphitun: FH – Valur, 11. september 2016

Árni Freyr Helgason skrifar:  

Þá er loks komið að því! Handboltinn hefst nú um helgina að loknu sumarleyfi, og er byrjunin ekki af verri endanum. Strákarnir okkar taka á móti bikarmeisturum Vals á sunnudag og má þar búast við hörkuleik, enda Valsmenn fyrirfram taldir vera eitt sterkasta lið deildarinnar. Lið FH ætlar sér stóra hluti í vetur og eru strákarnir staðráðnir í að byrja nýtt tímabil á góðum nótum.

Valur

Lið Vals hefur tekið nokkrum stakkaskiptum frá síðasta tímabili. Í atvinnumennsku héldu þrír af bestu leikmönnum deildarinnar; frændurnir Guðmundur Hólmar Helgason og Geir Guðmundsson auk Ómars Inga Magnússonar, og þá skipti Daníel Þór Ingason yfir til Hauka. Þá skipti önnur öflug skytta, Elvar Friðriksson, yfir til Gróttu.

Valsmenn hafa hins vegar fyllt vel í þau skörð og fengið til sín öfluga leikmenn. Leikstjórnandinn Anton Rúnarsson er kominn aftur heim úr atvinnumennsku, en hann hefur leikið í Þýskalandi og Danmörku síðustu ár. Þá kom skyttan efnilega Ólafur Ægir Ólafsson frá Fram, og Atli Karl Bachmann frá Víkingi. Þar að auki sóttu Valsarar rétthenda skyttu, Josip Juric Grgic að nafni, frá Króatíu. Sá sýndi góð tilþrif í Hafnarfjarðarmótinu, og gæti reynst drjúgur í vetur.

Þar fyrir utan er lið Vals afar vel skipað. Í markinu stendur einn besti markvörður deildarinnar, Hlynur Morthens, sem getur unnið leiki upp á eigin spýtur sé hann í stuði. Bræðurnir Orri Páll og og Ýmir Örn Gíslasynir, sem að vísu verður í banni í leiknum á sunnudag, eru sterkir leikmenn með Valshjörtu og þá eru hornin vel mönnuð af þeim Vigni Stefánssyni vinstra megin og Sveini Aroni Sveinssyni hægra megin. Hér er aðeins stiklað á stóru, en í hóp Vals eru margir góðir leikmenn sem komið geta inn og skipt sköpum.

Innbyrðis viðureignir

Í ljósi þess að hér er um fyrsta leik tímabilsins að ræða, er auðvitað ekki hægt að vísa til fyrri viðureignar í deildarleik líkt og gert verður í upphitunum síðar í vetur. Liðin mættust hins vegar í Hafnarfjarðarmótinu í ágúst, og fóru Valsmenn þar með sigur af hólmi eftir kaflaskiptan leik. Lokatölur voru 25-26, eftir að FH-ingar höfðu leitt í hálfleik (13-11) og raunar lengst af í leiknum.

FH

Nokkrir leikmenn koma til með að leika sína fyrstu deildarleiki í fagurhvítu treyjunni á sunnudag.

Arnar Freyr Ársælsson, vinstri hornamaður, kom til okkar frá Fram, þar sem hann var einn af betri mönnum liðsins á síðasta tímabili. Hann var afar sigursæll með yngri flokka liðum Safamýrarfélagsins og þá hefur hann leikið með öllum yngri landsliðum Íslands. H&ea

Aðrar fréttir