
Upphitun: FH – Valur, Meistarar Meistaranna
Nú er loksins komið að því! Handboltinn er að byrja! Fyrsti opinberi leikur tímabilsins fer fram á morgun, þriðjudaginn 20. September. Það er titill í húfi í árlegum leik “Meistarar Meistaranna”. Íslandsmeistarar FH og bikarmeistarar Vals mætast í í Mekka handknattleiksins á Íslandi, Kaplakrika klukkan 19:30.
Valur:
Lið Valsmanna varð bikarmeistari á síðasta tímabili eftir hörkuúrslitaleik gegn Akureyringum, þar sem þeir höfðu betur 26-24. Þeir lentu hins vegar í vandræðum í deildinni og komust ekki í úrslitakeppnina í fyrsta sinn í mörg ár eftir að hafa lent í 6. sæti N1-deildarinnar með 20 stig. Þar er hins vegar bikarmeistaratitillinn sem skilar Valsmönnum leikinn á morgun gegn FH og telur gengi liðsins í deildinni á síðasta tímabili ekki .
Valur hefur leikið gríðarlega vel á undirbúningstímabilinu. Liðið vann t.a.m. deildarmeistara síðasta árs, Akureyri í úrslitaleik Opna Norðlenska æfingamótsins á Akureyri á dögunum. Valur hafði til að mynda unnið Hauka fyrr á mótinu. Valsmenn hafa fengið góða leikmenn til liðs við sig fyrir komandi leiktíð. Gunnar Harðarson, sterkur línumaður gekk aftur í raðir Valsmanna eftir dvöl í Danmörku. Valsmenn fengu öfluga hægriskyttu í Magnúsi Einarssyni. En mestur var fengurinn hins vegar í varnartröllinu Sigfúsi Sigurðssyn, sem gekk í raðir V