Uppskeruhátíð meistaraflokks Frjálsíþróttadeildar FH
Uppskeruhátíð meistaraflokks Frjálsíþróttadeildar FH fór fram í Sjónarhóli 23. október sl. Á hátíðina mættu rúmlega 60 gestir og var boðið upp á dýrindismat frá Kjötkompaní sem Eggert Bogason galdraði fram af sinni kunnu snilld. Veittar voru eftirfarandi viðurkenningar fyrir góðan árangur á árinu:
- Mestu framfarir á árinu (karl) – Kormákur Ari Hafliðason fyrir 400m hlaup
- Mestu framfarir á árinu (kona) – Kristín Karlsdóttir fyri kringlukasti
- Viðurkenning Norðurlandamet – Hilmar Örn í sleggjukasti 6kg 79,81mFH-ingur ársins – Birgir Örn Höskuldsson
- Stökkvari FH (karl) – Kristinn Torfason, langstökk innanhúss 7,47m (1023 stig)
- Stökkvari FH (kona) – Þórdís Eva Steinsdóttir, Hástökk 1,70 (913 stig)
- Kastari FH (karl) – Hilmar Örn Jónsson, sleggjukast 7 kg, 69,78m (1028 stig)
- Kastari FH (kona) – Vigdís Jónsdóttir, sleggjukast 58,43m (907 stig)
- Hlaupari FH (karl) – Trausti Stefánsson, 400m innanhúss 47,62s (1067 stig)
- Hlaupari FH (kona) – Arna Stefanía Guðmundsdóttir, 400m grind 57,60s (1093 stig)
- Afrekskarl FH – Trausti Stefánsson, 400m hlaup innanhúss 47,62s (1067 stig)
- Afrekskona FH – Arna Stefanía Guðmundsdóttir, 400m grind 57,60s (1093 stig)
Að lokum var þjálfurum þakkað frábært og óeigingjarnt starf.