Úrslitahelgin: Halldór Jóhann hvetur FH-inga til að mæta í Höllina!
Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari meistaraflokks karla, hvetur FH-inga til að mæta í Höllina á föstudaginn þegar FH leikur gegn ÍR í undanúrslitum Coca Cola bikars karla. Gefum Halldóri orðið:
“Kæru FH ingar, ég er á mínu fimmta tímabili sem þjálfari FH og jafnframt því síðasta. Ég hef notið þess að starfa í þessu frábæra félagi frá fyrsta degi og mun njóta þess til hins síðasta. Mér var vel tekið þegar ég kom og í dag á ég marga af mínum bestu vinum í FH, fyrir það verð ég ævinlega þakklátur.
Við FH-ingar erum komnir í “Final Four” – Úrslitahelgina í Höllinni og það er ekki sjálfgefið. Strákarnir, starfsfólk liðsins og stjórn hafa unnið hörðum höndum í allan vetur og núna ætlum við að uppskera með ykkar frábæra stuðningi. Stuðningsmenn FH eru alltaf frábærir í stóru leikjunum og við búumst við því að Höllin verði hvit og svört á föstudaginn.
Láttu FH hjartað ráða og mættu í Höllina. Þú getur haft áhrif!!!
Ykkar einlægur og Áfram FH!!!”