Úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn: Fyllum Krikann
Í boði verða eftirfarandi miðar:
Sæti í aðalstúku vallarins – merkt hvítt og blátt.
Sæti í norðurstúku vallarins – merkt gult og grænt.
Stæði víðsvegar um völlinn – merkt gult og grænt.
Miðaverð:
Miðaverð er 1.500 krónur. Börn 11 ára og yngri fá frítt í stæði í fylgd með fullorðnum. Athugið samt að sækja þarf miða fyrirfram sökum takmarkaðs fjölda miða.
Forsala verður með eftirfarandi hætti:
Stjarnan fær úthlutað 1000 miðum til sölu til sinna áhangenda frá og með miðvikudeginum 1. október. Það eru sæti í stúku og stæði merkt blátt og gult.
Bakhjarlar FH fá afhenda sína miða gegn framvísun Bakhjarlakorts og geta að auki keypt allt að 4 auka miða í sæti í hvítu stúkuna en geta keypt fleiri miða í stæði í grænu stúkuna kjósi þeir það. Afhending og sala fer fram frá kl 16:00 – 19:00 þriðjudaginn 30. september og miðvikudaginn 1. október frá kl 09:00 – 13:00 í Kaplakrika.
Skráðir iðkendur hjá FH og fjölskyldur þeirra geta fengið afhenta miða og keypt miða frá klukkan 13:00 – 19:00 miðvikudaginn 1. október.
Skráðir Iðkendur fá fríann miða í stæði fyrir sig en foreldrar og systkyni mega kaupa miða fyrir sig á sama tíma. Í boði verða miðar í sæti í hvítu og grænu stúkuna.
Handhafar KSÍ korta og dómarakorta geta fengið afhenda miða í stæði fimmtudaginn 2. október milli kl. 12:00 og 13:30
Almenn forsala hefst svo í Kaplakrika fimmtudagsmorguninn 2. október kl. 09:00 og er opin til kl 19:00 fimmtudag og föstudag.
Athugið að fjöldi sæta í stúku eru einungis um 3000 og heildar fjöldi miða í boði verður að hámarki um 6000. Því er mikilvægt að tryggja sér miða í tíma en engin miðasala verður á leikdag.
Stjórn Knattspyrnudeildar FH
Miðasala:
Bakhjarlar 16:00 – 19:00 þriðjudaginn 30. september.
Bakhjarlar og iðkendur FH – miðvikudaginn 1. október kl 13:00 – 19:00.
Almenn forsala hefst fimmtudaginn 2. október kl 09:00 – 19:00.
Athuga að engin miðasala fer fram á leikdag og verða allir miðar seldir í forsölu. Heildarfjöldi sæta er 3000 og heildarfjöldi stæða 3000.
Miðaverð: 1.500 kr
Frítt fyrir 11 ára og yngri, sækja þarf barnamiða
Skýringamyndir sem verða einnig sendar sem viðhengi á fjölmiðla.
Suðurstúka.
Norðurstúka