FH x Henson

9.900 kr.

Eins og síðustu þrjú ár mun FH gefa út sérstaka góðgerðartreyju sem þriðja búning sinn í lok maí.
Við höfum leikið sérstaka góðgerðarleiki í treyjunni og einnig gegn KR í vesturbænum, þar sem varabúningur okkar er svartur og ekki gjaldgengur gegn þeim. Þar sem góðgerðartreyjan er ekki komin út í ár var ákveðið að fara ótroðnar slóðir í búningavali kvöldsins 👌
Ákveðið var að fara í gamla bláa litinn sem prýddi varabúning FH í mörg ár. Treyjan sjálf er frá Henson og er mynstrið óður til Aston Villa treyjunnar sem Henson hönnuðu fyrir þá árið 1986.
FH á svo sannarlega tengingu við Aston Villa – liðið náði glæsilegu jafntefli á Villa Park 2008 og svo hefur núverandi þjálfari liðsins, Jóhannes Karl, spilað fyrir félagið.
Allt var þetta gert í samstarfi við Nike – þar sem við vildum ekki flýta frumsýningu treyjunnar 🤝🤍
Hlökkum til að sýna ykkur afraksturinn eftir rúman mánuð!⏳🫡
Frekar stórar stærðir heldur en litlar.

Tengdar vörur

Secret Link