Viltu sleppa við biðröðina við miðsöluna á leikdag?
Pyngjan er ný greiðsluleið fyrir Pepsi-deildina
Nú er hægt að nota Pyngjuna til að kaupa miða á heimaleiki nokkurra félaga í Pepsi-deild karla og er FH þar á meðal.
Hér eru leiðbeiningar hvernig er hægt að nota Pyngjuna.
Þegar miði er keyptur í Pyngjunni er farið í “Söluaðilar” á forsíðunni.
Þar undir er valið félagið sem kaupa á miða hjá.
Valið er að kaupa miða og því næst greitt.
Til að ganga frá sölu er smella á „Kaupa miða“
Hér er valið hvaða greiðslukort nota á við greiðslu.
Hér er valið 4 stafa lykilorð
Starfsmaður við inngang virkjar svo miðann með því að smella á „Nota miða“
Eftir að starfsmaður FH hefur virkt miðann hefst niðurtalning sem þýðir að notkun hefur hafist á miðanum.
Ef þig vantar frekari upplýsingar er hægt að nálgast þær í gegnum www.pyngjan.is