VIP-aðgangur á fimmtudaginn
FH og Elfsborg mætast í þriðju umferð Evrópudeildarinnar á fimmtudaginn. Hægt verður að kaupa sig inn í svokallað VIP-aðgang og má sjá matseðilinn og verðið með því að smella á meira.
Opið er fyrir almenning að kaupa miða í VIP-ið, en miðapantanir fara í gegnum hilli@fh.is.
Matseðill
Kjúklingaspjót Lambaspjót
Laxaspjót Tígrisrækjur
Serrano skinka Chorizo sneiðar
Pesto og brauð Íslenskir ostar
Jóhannes Jóhannesson fv. landsliðs- og sjónvarpskokkur sér um matseldina.
Maturinn er borin fram fyrir leik og opnar húsið kl. 17:00
Í hálfleik verður boðið uppá kaffi,
einnig verður hægt að kaupa aðra drykki.
Innifalið í verði: Rauðvín, hvítvín, bjór og miði á leikinn
Verð: 8.000 kr
Bakhjarlar: 7.000 kr