Yfirlýsing frá formönnum FH og Hauka

Yfirlýsing frá formönnum FH og Hauka

Formenn handknattleiksdeilda FH og Hauka hafa sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu vegna atviksins í lok Bikarleiks félaganna á sunnudaginn var:

„Deildirnar þakka þeim fjölmörgu stuðningsmönnum
félaganna sem mættu og studdu dyggilega við bakið á sínum liðum á
sunnudag og hjálpuðu til við að mynda frábæra stemningu á vellinum.
Leikir FH og Hauka í handknattleik hafa jafnan verið góð auglýsing
fyrir íþróttina og síðustu tvær viðureignir liðanna eru engar
undantekningar á því.

Því miður áttu sér stað
nokkur leiðinda atvik undir lok leiksins sem félögin harma og munu taka
á innan sinna raða. Félögin leggja mikla áherslu á að leikmenn séu
börnum og unglingum jákvæðar fyrirmyndir innan vallar sem utan. Það er
von félaganna að þessi atvik varpi hvorki skugga á frábæran
handboltaleik né dragi úr þeim meðbyr sem handknattleiksíþróttin hefur
notið undanfarin misseri.

Félögin munu hér eftir
sem hingað til leggja áherslu á að stuðla að skemmtilegri og
fjölskylduvænni umgjörð leikja. Við hvetjum alla handknattleiksunnendur
og fjölmiðla til leggja okkur lið í þeirri viðleitni og vonum að
árangurinn birtist í enn frekari aukningu iðkenda og áhorfenda.“

Virðingarfyllst,

Þorgeir Arnar Jónsson, formaður handknattleiksdeildar FH.

Þorvarður Tjörvi Ólafsson, formaður handknattleiksdeildar Hauka.

Aðrar fréttir