Yfirlýsing frá hkd FH

Yfirlýsing frá hkd FH

Vegna fréttaumfjöllunar í dag vill handknattleiksdeild FH og leikmaðurinn Jóhann Birgir Ingvarsson senda frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:

 Eftir bikarúrslitaleik karla í handknattleik, þann 28. febrúar sl., var leikmaður félagsins, Jóhann Birgir Ingvarsson, tekinn í lyfjapróf sem mældist jákvætt. Leikmaðurinn, í samráði við félagið, óskaði eftir að B-sýni yrði tekið til rannsóknar. Niðurstaða B-sýnis er í samræmi við niðurstöðu úr A-sýni, eða jákvæð. Leikmaðurinn og félagið hafa aðstoðað lyfjaeftirlit ÍSÍ við rannsókn málsins af fremsta megni allt frá upphafi, en harma jafnframt að málið hafi komið upp.

 Jóhann Birgir tók inn fæðubótarefni í góðri trú, sem er leyfilegt í sölu á Íslandi. Þó virðist vera að ákveðið efni sem finna má á bannlista lyfjaeftirlits ÍSÍ, sé í þessu ákveðna fæðubótarefni.

 Jóhann Birgir, ásamt handknattleiksdeild FH, fordæma fréttaflutning ákveðinna miðla í dag, þar sem að rangfærslur eru settar fram bæði vegna rannsóknar lyfjaeftirlitsins á B-sýni, sem og meintri játningu hans á notkun ólöglegra efna. Leikmaðurinn gekkst frá upphafi við því að hafa neitt þessa ákveðna fæðubótarefnis, en í góðri trú og óskaði strax eftir því að B-sýni yrði tekið til rannsóknar.

 Jóhann Birgir og handknattleiksdeild FH vilja koma á framfæri ábendingu til íþróttamanna á Íslandi að vera vel á verði gagnvart þeim fæðubótarefnum sem verið er að neyta. Það er ávallt á ábyrgð hvers og eins íþróttamanns hvað hann lætur ofan í sig og mun Jóhann Birgir því ávallt taka fulla ábyrgð og sætta sig við niðurstöðu dómstóls ÍSÍ, sama hver hún kann að vera.

 Handknattleiksdeild FH og Jóhann Birgir munu ekki tjá sig frekar um málið fyrr en niðurstaða dómstóls ÍSÍ liggur fyrir.

 Fyrir hönd handknattleiksdeildar FH,

Ásgeir Jónsson formaður

 Jóhann Birgir Ingvarsson

Aðrar fréttir