Yngra árið einnig Íslandsmeistarar í 5.fl
Yngra ár 5. flokks FH í handbolta gerði góða ferð
til Húsavíkur um helgina. Strákarnir unnu mótið og enduðu þar með sem
Íslandsmeistarar í vetur og fóru í gegnum veturinn án þess að tapa einu
stigi. Frábær árangur það. Stelpurnar gerðu einnig vel og náðu öðru
sæti og jafnframt öðru sæti á Íslandsmótinu. Framtíðin er því sannarlega
björt hjá FH-ingum í handboltanum.