2. fl Íslandsm. Umfjöllun og myndir

2. fl Íslandsm. Umfjöllun og myndir

Síðastliðið
fimmtudagskvöld tryggði 2. flokkur karla hjá FH sér Íslandsmeistaratitillinn í
handknattleik. Liðið lék fyrir norðan við sameinað lið Þórs og KA, Akureyri.
Þetta var síðari viðureign liðana en FH hafði unnið fyrri leikinn með 6 marka
mun 36 – 30 í Kaplakrika um síðustu helgi. Það var því ljóst að Akureyringar
yrðu að sigra með 7 mörkum til að ná titlinum af FH – ingum. FH lék án Ólafs
Guðmundssonar og Arons Pálmarsson sem báðir gengust undir aðgerðir vegna meiðsla
sinna nýlega.



Það var mikil
stemmning í Íþróttahöllinni á Akureyri þegar flautað var til leiks. Mikill
fjöldi heimamanna studdi sitt lið, en einnig fjölmennur hópur FH ingar sem
fylgdi sínum mönnum að sunnan.

 

Leikurinn fór vel
af stað fyrir FH inga og var í jafnvægi framan af. Þegar líða tók á
hálfleikinn tóku FH ingar góðan kipp og náðu á tímabili 4 marka forustu sem
Akureyringar náðu að minnka niður í eitt mark fyrir hlé. Staðan í hálfleik 14 –
15  fyrir FH.

 

Akureyringar byrjuðu
seinni hálfleik vel og náðu fljótlega 2 marka forrustu. En FH strákarnir settu
svo í gírinn og jöfnuðu 22 – 22 og kláruðu svo leikinn með frábærri frammistöðu
30 – 34.

 

Erfitt er að taka
einhverja leikmenn út úr FH liðinu á fimmtudag. Þeir börðust allir eins og ljón
og spiluðu sem einn maður. Sóknarleikurinn var frábær þar sem Ólafur Gústafsson
fór hamförum með 9 mörk. Vörnin var ágæt með Daníel Andrésson í miklu stuði
fyrir aftan.

 

Hrósa verður
strákunum og þjálfaranum Sigursteini Arndal fyrir frammistöðuna í þessum
tveimur leikjum. 10 marka sigur samanlagt gegn jafn sterku liði og Akureyri
verður að teljast frábær árangur.

 

FH –ingar eru
Íslandsmeistarar í 2. flokki í fyrsta skipti í svo

Aðrar fréttir