3. fl. kv. Bikarúrslitaleikur á morgun
Á morgun kl. 14:00 fer fram síðasti stórleikur ársins í yngri flokkum FH í fótbolta. Þá mætast lið FH og Vals í 3. fl. kv. í Bikarúrslitaleik á Vodafone-vellinum. FH á titil að verja en undanfarin tvö ár hefur liðið sigrað Visa-bikarinn.
Sem ríkjandi meistarar sat FH hjá í fyrstu umferð en mætti síðan ÍBV í annarri umferð í eyjum. Sá leikur var afar spennandi og má segja að FH hafi marið 2-3 sigur á Heimaey. Því næst mætti FH liði Selfyssinga og sigraði sannfærandi 6-0 í Krikanum. Þá var komið Blikum í undanúrslitum og vann FH þann leik 4-1 einnig í Krikanum.
Á leið sinni í úrslitaleikinn hefur Valur hins vegar lagt ÍA, Aftureldingu og Stjörnuna að velli.
FH-stelpurnar mæta ákveðnar til leiks en liðið hefur verið duglegt við að koma sér í úrslitaleiki þetta árið. Þær töpuðu naumlega fyrir HK í úrslitaleik á Íslandsmótinu innanhús, unnu Faxann í keppni A og B liða og nú á dögunum urðu þær Íslandsmeistarar einnig í liðum A og B.
Við viljum hvetja alla FH-inga til að skella sér í höfuðborgina í sunndagsbíltúr með Ís og öllu og mæta svo á völlinn og styðja stelpurnar.
Áfram FH