3. fl. kv. Íslandsmeistarar
Framan af var jafnræði með liðunum þó ÍA hafi verið ívið sterkari í fyrri hálfleik. FH stelpurnar girtu sig hinsvegar í brók í hálfleik og unnu sig vel inní leikinn í síðari hálfleik, fengu fleiri færi og voru líklegri. Þó þurfti að grípa til framlengingar og síðar til vítaspyrnukeppni til að skera úr um. Og það voru FH-ingar sem kláruðu leikinn!!!. Birna Berg Haraldsdóttir skoraði úr síðustu spyrnu FH og varði síðustu spyrnu ÍA. Áður höfðu þær Kristín Guðmundsdótti skotið í stöng, Elísabet Guðmundsdóttir skorað, Árstrós Lea skorað og Guðný Tómasdóttir skorað. En ÍA misnotaði 2 spyrnur. Sigur!!!
Til hamingju stelpur með titilinn og ekki síður með titilinn í keppni B-liða