3. flokkur karla í úrslitaleikina í A- og B-liðum

3. flokkur karla í úrslitaleikina í A- og B-liðum

1. maí lék A-liðið gegn HK í Kaplakrika og strákarnir sigruðu 4-1 í hörkugóðum leik og stukku þar með í 2. sætið í riðlinum. Í hálfleik var staðan 1-1 en mörk FH gerður þeir Vignir Lúðvíksson (2), Garðar Leifsson og Andri Magnússon.

Í undanúrslitum mættu svo strákarnir Keflvíkingum í Reykjaneshöllinni. FH-ingar sigrðu 0-1 og skoraði Brynjar Ásgeir Guðmundsson markið í fyrri hálfleik. FH-ingar mæta Breiðabliki í úrslitaleik þriðjudaginn 15. maí.

B-liðið tryggði sér sæti í úrslitaleiknum með því að sigra HK 9-1 á heimavelli. Strákarnir eiga að vísu 1 leik eftir í riðlinum gegn FH 2, sá leikur verður kláraður í vikunni en úrslitaleikurinn verður gegn Selfyssingum þriðjudaginn 15. maí. 

Aðrar fréttir