Ágúst Birgisson framlengir við FH til 2020.

Ágúst Birgisson hefur skrifað undir nýjan samning við FH sem gildir til ársins 2020.

“Við erum feykilega ánægð hjá Fimleikafélaginu með að hafa náð að klára nýjan samning við Ágúst á þessum tímapunkti. Gústi er drengur góður sem gefur mikið af sér innan sem utan vallar. Frábær handboltamaður og mikil fyrirmynd innan okkar félags.” segir Ásgeir Jónsson formaður hkd FH. “Það er sérstaklega ánægjulegt fyrir FH sem félag þegar leikmenn vilja vera hjá okkur til langs tíma, það segir okkur að við erum að gera eitthvað rétt.” sagði Ásgeir ennfremur.

Þetta eru frábærar fréttir fyrir okku FH-inga enda hefur Ágúst Birgisson verið einn af lykilleikmönnum FH undanfarin ár og var meðal annars valinn besti varnarmaður Olísdeildarinnar í lok síðasta tímabils. Ágúst er eins og allir vita, hvoru tveggja nautsterkur varnarmaður og ólseigur sóknarmaður.

 

VIÐ ERUM FH.

Aðrar fréttir