Allar deildir FH í Adidas.

Allar deildir FH í Adidas.

 

Samstarf FH og Adidas byrjaði árið 1991 þegar þeir Jón Rúnar Halldórsson formaður knattspyrnudeildar FH og Guðmundur Ágúst Pétursson forstjóri Adidas á Íslandi og gerðu með sér samning. Núna eftir 24 ára hjónaband þá framlengdu þeir samninginn um 4 ár til viðbótar.  Frjálsíþróttadeild FH hefur keppt í Adidas frá árinu 1998 sleitulaust, og handknattleiksdeildin frá árinu 2001 með smá pásum. En nú bætist skylmingardeildin við og því keppa allar deildir FH í Adidas fatnaði.

Meðfylgjandi er mynd sem Hafliði Breiðfjörð tók

Undir samningin skrifuðu formenn deildana.

Sigurður Haraldsson – frjálsíþróttadeild

Jón Rúnar Halldórsson – knattspyrnudeild

Ragnar Ingi Sigurðsson – skylmingardeild 

Ásgeir Jónsson – handknattleiksdeild 

Aðrar fréttir