Allar deildir FH í Adidas.
Samstarf FH og Adidas byrjaði árið 1991 þegar þeir Jón Rúnar Halldórsson formaður knattspyrnudeildar FH og Guðmundur Ágúst Pétursson forstjóri Adidas á Íslandi og gerðu með sér samning. Núna eftir 24 ára hjónaband þá framlengdu þeir samninginn um 4 ár til viðbótar. Frjálsíþróttadeild FH hefur keppt í Adidas frá árinu 1998 sleitulaust, og handknattleiksdeildin frá árinu 2001 með smá pásum. En nú bætist skylmingardeildin við og því keppa allar deildir FH í Adidas fatnaði.
Meðfylgjandi er mynd sem Hafliði Breiðfjörð tók
Undir samningin skrifuðu formenn deildana.
Sigurður Haraldsson – frjálsíþróttadeild
Jón Rúnar Halldórsson – knattspyrnudeild
Ragnar Ingi Sigurðsson – skylmingardeild
Ásgeir Jónsson – handknattleiksdeild