Annar flokkur karla byrjar mótið vel.

Annar flokkur karla byrjar mótið vel.

Það er ekki hægt að segja að kjöraðstæður hefðu verið til
knattspyrnuiðkunar í Kaplakrika í kvöld. Engu að síður létu vaskir
piltar úr öðrum flokki  FH það ekki á sig fá og sigruðu Valsmenn í
fyrsta leik Íslandsmótsins 2 – 0. Fótboltinn sem spilaður var í kvöld
var langt frá því að vera áferðarfallegur en það eru víst stigin sem
telja, þá er ekki átt við vindstigin. Mörk FH skoruðu Matthías
Vilhjálmsson úr aukaspyrnu og Eiríkur Viljar náði að pota boltanum inn
rétt fyrir lok leiks. Þetta hlýtur að teljast gott veganesti þar sem
drengirnir eru á leið til Portúgal í æfingabúðir. FH.is óskar þeim
góðrar ferðar!

Aðrar fréttir