Baráttan heldur áfram, Haukarnir aftur í kvöld.

Baráttan heldur áfram, Haukarnir aftur í kvöld.

Baráttan hjá mfl karla heldur áfram í kvöld þegar strákarnir mæta á Schenkervelli í kvöld. Strákarnir hafa harma að hefna enda hafa viðureignir FH og Hauka í vetur ekki farið eins og FH-ingar óska sér. En það er nýr dagur í dag og strákarnir eru staðráðnir í því að standa saman og berjast með FH hjartanu. Síðasti leikur var hörkuleikur sem endaði með tveggja marka tapi og því raun afar lítið sem vantaði upp á.

 

Leikurinn í kvöld hefst kl 20.00 og FH-ingar eru hvattir til að styðja strákana til sigurs. Baráttan um sæti í úrslitakeppninni er geysilega hörð og þinn stuðningur skiptir máli.

 

Áfram FH

Aðrar fréttir