Baráttan um Fjörðinn – FH-Haukablað
Í tilefni af Hafnarfjarðarslagnum sem hefst kl 19:30 í kvöld hjá strákunum og kl 16:00 á laugardaginn hjá stelpunum hefur sérstöku FH-Haukablaði verið dreift í Hafnarfirði á vegum Muggs – stuðningsmannafélags handknattleiksdeildar. Þetta er mjög veglegt blað með viðtölum við þjálfara, sérfræðinga og síðan eru þekktir aðilar sem spá fyrir um úrslit leikjanna
Að venju hittast MUGGARAR í horninu sínu í tengibyggingunni og verður Muggurum boðið uppá súpu og brauð. Verður tilvalið að mæta 1 klst fyrir leik, fá sér súpu og spjalla aðeins um leik kvöldsins.
Reikna má með miklum fjölda á þennan leik og tilvalið að mæta tímanlega
Skorum við á ALLA MUGGARA að mæta á þennan tímamótaleik.