Björgvin og Sigrún á leið til Jamaíka

Björgvin og Sigrún á leið til Jamaíka

Ég held að allir geti verið sammála mér þegar ég segi til hamingu. Þessar hamingjuóskir eru að sjálfsögðu ætlaðar þeim Björgvini Víkingssyni og Sigrúnu Fjeldsted. Það hefur verið ákveðið að þau verða á meðal keppenda á HM unglinga sem fram fer í landi vetraríþróttanna, Jamaíka.

Björgvin mun keppa í 400m grindarhlaupi sem hann hefur æft stíft undanfarið. Hann mun án efa bæta sig úti ef hann hittir á gott hlaup því hann hefur verið að hlaupa mjög vel á síðustu mótum þrátt fyrir að vera nýstiginn upp úr erfiðri tognun.

Sigrún hefur verið að kasta nálægt lágmarkinu í spjótkastinu, vantar aðeins um einn metra og segja menn það aðeins tímaspursmál hvenær hún kastar 50 metrana.Til hamingju aftur Bjöggi og Sigrún og góða ferð út.

Aðrar fréttir