Ellert Snær valinn í U-17 ára landsliðið

Ellert Snær valinn í U-17 ára landsliðið

Ellert Snær Lárusson, leikmaður 2. flokks FH í knattspyrnu, hefur verið valinn í U-17 ára landslið Íslands sem heldur til Möltu í lok mánaðar og tekur þátt í undankeppni Evrópumótsins. Ellert, sem lék í sumar með 2. og 3. flokki FH tók einnig þátt á Norðurlandamótinu með U-17 fyrr á árinu.

FH.is óskar Ellerti Snæ til lukku með þetta enda alltaf ánægjulegt þegar FH-ingar leika fyrir Íslands hönd og jafnframt góðs gengis á Möltu.

Aðrar fréttir