Enn einn úrslitaleikurinn: FH-HK í kvöld kl 19.30

Enn einn úrslitaleikurinn: FH-HK í kvöld kl 19.30

Baráttan um sæti í úrslitakeppni Olísdeildar karla heldur áfram. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur FH-inga, Það er nokkuð ljóst að síðustu tvær umferðirnar verða æsispennandi og dramað í hámarki, en það er einmitt það sem gerir þessa þjóðaríþrótt okkar Íslendinga svona skemmtilega.

 

Við strákarnir treystum á þinn stuðning, við munum gera okkar allra besta til að uppfylla draum okkar allra.

 

Úrslitakeppnin er enn það sem við stefnum á og við trúum því að ef við og stuðningsmenn stöndum saman þá takist okkur það.

 

Sjáumst í Krikanum í kvöld kl: 19.30

 

Strákarnir ykkar.

Aðrar fréttir