FH – Breiðablik mánudaginn 7.maí
Mótherji: Breiðablik
Hvar: Kaplakrika
Hvenær: Mánudaginn 7.maí
Klukkan: 19:15
Fyrsti heimaleikur sumarsins er á mánudaginn þegar við fáum Breiðablik í heimsókn í Kaplakrika. Það verður eins og síðustu ár opnað á pallinum klukkustund fyrir leik þar sem verða seldir FH-borgararnir frægu og kaldir drykkir verða seldir.
Það verður barnagæsla í Dvergnum fyrir 3 ára og eldri sem kostar 500 kr á meðan leik stendur en frítt fyrir Bakhjarla.
Nú mæta allir á völlinn og ekki bara mæta, heldur láta vel í sér heyra. Vinnum þennan leik saman og höldum ótrauð áfram!