FH – Fram mfl.kvk

FH – Fram mfl.kvk

Á miðvikudag kl. 20:00 er stórleikur FH og Fram í 1. deild kvenna. Stelpurnar vilja endilega fá sem bestan stuðning og ætla að bjóða stelpum í yngri flokkum FH á leikinn og í smá grillveislu á undan. Að sjálfsögðu vonumst við til að sjá foreldra, systkini og ömmur og afa líka. 

Við byrjum að fíra upp í grillinu kl. 19:15 þar sem grillaðar verða sérstakar pylsur í boði Barna-og unglingaráðs. Risinn verður opinn ef einhvern langar í fótbolta, boðið verður upp á andlitsmálun og svo hefst leikurinn kl. 20:00. Fyrir leik ætla stúlkur í 5., 6. og 7. flokki kvenna að ganga inn á völlinn í FH-treyjunum með medalíur um hálsinn og þá bikara sem unnust. Allir á völlinn og hrópum ÁFRAM FH!!!

 

Aðrar fréttir