FH-HK Olísdeild karla
Fimmtudaginn 9 október kl: 19.30 fer fram leikur FH og HK í Olísdeild karla.
Nú þurfa ALLIR stuðningsmenn FH að fjölmenna í Kaplakrika og styðja strákana í baráttunni. FH-ingar eru sem stendur í fjórða sæti deildarinnar og ætla sér ekkert annað en sigur á fimmtudaginn.
ALLIR að mæta í Krikann og hvetja strákana áfram. Stöndum saman.
Áfram FH
Dagskrá:
Húsið opnar 18.30.
Súpan ljúffenga framborin fyrir Muggara, spjallað um allt sem skiptir máli og líka allt sem skiptir ekki máli ( hægt að skrá sig í Mugg á staðnum ).
Allir Muggarar fá einnig veitingar í hálfleik ásamt eðalkaffi að hætti hússins.
Sjoppan góða opin fyrir alla sælkera.
Poppvélin í fullum gangi.
Grillaðir hamborgarar fyrir alla fjölskylduna á vægu verði.
Brandarahornið opið og heyrst hefur að nokkrir hafi bókað sig nú þegar í hornið góða.
Gáta lífsins leyst.
Mætum snemma, gleðjumst saman og hvetjum strákana til sigurs.
Aðeins 1.000 kr inn fyrir fullorðna og frítt fyrir 15 ára og yngri.
Áfram FH