FH-HK Olísdeild karla

FH-HK Olísdeild karla

Fimmtudaginn 9 október kl: 19.30 fer fram leikur FH og HK í Olísdeild karla.

Nú þurfa ALLIR stuðningsmenn FH að fjölmenna í Kaplakrika og styðja strákana í baráttunni. FH-ingar eru sem stendur í fjórða sæti deildarinnar og ætla sér ekkert annað en sigur á fimmtudaginn.

 

ALLIR að mæta í Krikann og hvetja strákana áfram. Stöndum saman.

 

Áfram FH

 

Dagskrá:

 

Húsið opnar 18.30.

Súpan ljúffenga framborin fyrir Muggara, spjallað um allt sem skiptir máli og líka allt sem skiptir ekki máli (  hægt að skrá sig í Mugg á staðnum ).

Allir Muggarar fá einnig veitingar í hálfleik ásamt eðalkaffi að hætti hússins.

Sjoppan góða opin fyrir alla sælkera.

Poppvélin í fullum gangi.

Grillaðir hamborgarar fyrir alla fjölskylduna á vægu verði.

Brandarahornið opið og heyrst hefur að nokkrir hafi bókað sig nú þegar í hornið góða.

Gáta lífsins leyst.

 

Mætum snemma, gleðjumst saman og hvetjum strákana til sigurs.

 

Aðeins 1.000 kr inn fyrir fullorðna og frítt fyrir 15 ára og yngri.

 

Áfram FH

Aðrar fréttir