FH leitar eftir metnaðarfullum þjálfara fyrir 2.fl. kvk.
FH leitar eftir metnaðarfullum þjálfara fyrir 2.fl. kvk.
Kvennaráð FH auglýsir stöðu þjálfara 2.fl.kvk. lausa til umsóknar.
Viðkomandi þarf að hafa lokið UEFA B gráðu og KSÍ V að auki, með reynslu af þjálfun og metnað til að vinna að frekari uppgangi í kvennaknattspyrnunni hjá FH. 2.fl. kvk. FH var Íslandsmeistari árið 2012 og lenti í öðru sæti í ár.
Umsóknafrestur er til 18. október og skulu umsóknir, ásamt upplýsingum um þjálfaraferil og fyrri afrek, berast til Kvennaráðs FH á netfangið: kvennarad@fh.is
F.h. kvennaráðs FH
Bjarki Unnarsson